Sjálftæðismenn njósna kannski nú sem fyrr.

Ég held að ekki þurfi að rannsaka málið frekar. Það er greinilegt í þessu tilviki að hér hafa Sjálfstæðismenn, eða að minnstakosti þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, sennilega og/eða kannski komið tölvunni fyrir í herberginu.  Ég skil ekki afhverju Sigurður Kári, sem gæti hugsanlega verið aðalsprautan í þessu máli, hefur ekki verið yfirheyrður.
mbl.is Grunur um njósnir á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

John Stuart Mill og Mogginn.

Afskaplega þykir mér mogginn lélegur miðill. Fyrir utan menningarsíðurnar, þær eru góðar.

Örvæntingarfull tilraun Valhallar til að rýra gildi undirskriftasöfnunar Bjarkar er sorgleg. Hver sá sem fellur fyrir skruminu er annaðhvort heimskur, eða sjálfstæðismaður.

Átrúnaðargoð ungra hægridrengja ,John Stuart Mill, sagði eitt sinn: "Conservatives are not necessarily stupid, but most stupid people are conservatives."


mbl.is Skráð gegn vilja sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svei!

Árni Sigfússon þráir ekkert heitar en að Norðurál reisi verksmiðju í Helguvík. Helstu rök hans eru einmitt að launin séu svo góð.  Ég vísa beint í skrif Árna:"Laun í álveri munu hækka meðallaun á Suðurnesjum verulega."

Hversu lág telur Árni meðallaun Suðurnesja vera? 

Smellið hér til að lesa hugleiðingar Landstjórans.


mbl.is Vilja af skammarlega lágum launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjó

Í Grindavík er Sjálfstæðismaður á fullum launum sem bæjarstjóri. Látum hann vinna fyrir kaupinu. Setjum sem skilyrði að hann selji ekkert. Hann hlýtur að gata haldið í sér í 6 mánuði.
mbl.is Meirihlutinn sprunginn í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt sækir engin um vinnuna mína.

Ég er svo heppinn að hafa þægilega innivinnu í Reykjanesbæ. Ég hef nú sagt upp störfum því ég varð  ennþá heppnari og var boðið að taka að mér aðra og þægilegri innivinnu. Þangað vil ég fara sem fyrst  en einhvern verður að ráða í minn stað. Gallinn er sá að það sækir engin um. Launin eru um 300.000 krónur á mánuði fyrir fulla vinnu og næg yfirvinna fyrir þá sem nenna.

 


mbl.is 1729 atvinnulaus á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sviksemi

Alveg er það magnað að sjá verkalýðsfélög hlaupa undir bagga álþjóðlegra stórfyrirtækja. Hið sama er uppi á teningnum á suðurnesjum og maður veltir fyrir sér hverslags hagsmunir liggi þar að baki. Stóriðjustörf eru hættuleg og illalaunuð og ég skil ekki hvernig verkalýðfélag getur selt sálu sína fyrir skitin meðallaun upp á 300.000 kall á mánuði þegar áhættuþátturinn og minnkaðar lífslíkur starfsmanna eru reiknaðar inn í jöfnuna. Það er lítil reisn í því fólgin að jarma í meðvirknikór með alþjóðlegu risafyrirtæki sem kvartar undan skattheimtu og löngu kominn tími til að þrýst verði á þessi fyrirtæki að borga til samfélagsins. Ef þau þola það ekki, þá farið hefur fé betra. Með því að selja þessa orku gegnum sæstreng, t.d til Bretlands, gætum við margfaldað hagnað umfram klinkið sem álfyrirtækin eru að borga og þá erum við að tala um alvöru tekjur.

 Ekki gleyma því að álfyrirtækin reikna öll sín laun í erlendri mynnt en greiða út í íslenskum krónum og því hefur hagnaður þeirra margfaldast á við útgjaldaliði. Þeim er engin vorkunn og skömm að því hvernig áróður og hótanir hafa markað stóriðjuumræðuna í gegnum tíðina. 


mbl.is Boða fund um stóriðjuskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ICESAVE

Nú hef ég það eftir nokkuð traustum heimildum að afhending bóluefnis sé í höndum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og það fáist ekki afhent fyrr en Íslendingar gangi frá ICESAVE-málinu.
mbl.is Tafir á bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bla

pff

var veikur í 10 daga

Já ég fékk einhverja skítapest, hiti og læti í 10 dag. Frá 24.júní til 4.júlí. Tíu ömurlegir dagar, 25.júní var fyrsti dagur í sumarfríi. Ég leitaði til þriggja lækna sem allir töldu öruggt að ég væri ekki með svínapest og tóku því ekki sýni til ræktunar. Jafnvel þó svo ég hefði nokkrum dögum fyrr leyft þremur Kanadamönnum að gista hjá mér sem voru nýkomnir til landsins. Þau voru öll nýbúin að vera veik eða að sýna fyrstu einkenni pestar. Ég var á leið til Þýskalands, og fór á endanum þangað fárveikur. En ekki töldu læknarnir ástæðu að aðhafast að öðru leiti en að skrifa upp á pensilín, sem ég ætti að gleypa ef hóstinn yrði virkilega ljótur í útlandinu. Mér þykir aðferðir Keflavísku læknanna vera í dálítilli mótsögn við fyrirmæli Faralds sóttvarnalæknis.

 


mbl.is Níunda svínaflensutilfellið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband